01 - SW Eldur
02 - Car Hlaupandi
03 - SW Spjall
04 - Car Hopp
05 - SW Appelsina
06 - Car Hlaupandi Ny
07 - SW Hop spjall
08 - Car Splitt Ny
09 - SW Gaur
10 - Car Ny
Skilmálar & reglur
 
 
Afgreiðsla pantana

Veiðiland sér um dreifingu pantana á höfuðborgarsvæðinu í flestum tilvikum. Aðrar pantanir eru sendar með Íslandspósti. Því gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu. Til að gæta fyllsta samræmis eru allar pantanir út á land sendar á næsta pósthús.

Allar pantanir sem gerðar eru fyrir 21:00 fara í dreifingu í síðasta lagi næsta virka dag eftir að pöntun er gerð.
Þannig fer pöntun sem gerð er á fimmtudegi kl. 20:15 í dreifingu á föstudegi. Pöntun sem gerð er á fimmtudegi kl. 23:30 fer hins vegar í dreifingu í síðasta lagi á mánudegi.
 
Ef þú pantar hjá okkur fyrir kl. 14.00 á virkum dögum, sendum við pakkann samdægurs.
 
ATH. Veiðiland afgreiðir eingöngu pantanir sem greitt hefur verið fyrir, nema samið hafi verið um annað (t.d. sent með póstkröfu).  Það er því mjög mikilvægt að ganga strax frá millifærslu að pöntun lokinni ef sá greiðslukostur hefur verið valinn.

Sendingarkostnaður

Veiðiland býður fría heimsendingu ef verslað er fyrir 20.000 kr. eða meira.
Annars er sendingarkostnaður fastur 999 kr. per sendingu.
Sjá nánar skilmála um skilarétt.

Greiðslumöguleikar


Veiðiland.is býður 3 möguleika á greiðslu:

1.  Greitt með kreditkorti. Sé valið að greiða með kreditkorti færist viðskiptavinur sjálfkrafa yfir á öruggt svæði hjá Borgun, þar sem gengið er frá greiðslunni.  Þau kort sem hægt er að greiða með má nánar sjá neðst á forsíðu Veiðiland.is eða hjá Borgun.
Hægt er að fá nánari upplýsingar hér.

2.  Að greitt sé með millifærslu að pöntun lokinni. Upplýsingar um reikningsnúmer koma fram á staðfestingu pöntunar sem kaupanda berst í tölvupósti.

3.  Greitt í póstkröfu. Sé það valið þá eru vörur sendar til kaupanda og hann greiðir fyrir vörurnar við móttöku. Kostnaður við póstkröfu er 500 kr. aukalega til viðbótar við verð innkaupakörfu + sendingarkostnað. 500 kr. er það gjald sem Íslandspóstur tekur fyrir umsjón póstkröfu.


Skilaréttur
Við hjá Veiðilandi viljum að þú sért hress & kát/ur með það sem þú verslar hjá okkur.

Viðskiptavinir geta fengið vörur að fullu endurgreiddar ef þeim er skilað í upprunalegu ástandi innan 14 daga frá afhendingu vörunnar.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur.

Veiðiland áskilur sér rétt til að gjaldfæra sendingarkostnað kr. 990 ef pöntunum, sem fengið hafa fría heimsendingu, er skilað að hluta eða öllu leyti.

Endursending vara er á ábyrgð og kostnað kaupanda, nema viðskiptavinur hafi fengið rangar/skemmdar vörur afhentar.

Ef þið viljið skila/skipta vörum eða hafið fengið rangar vörur afhentar, hafið þá samband í síma  775 4696 eða á
veidiland@veidiland.is.
 

Vörur og framboð

Allar vörur á Veiðiland.is bera 25.5% virðisaukaskatt sem er innifalinn í verðinu.  Sendingarkostnaður ber 25,5% VSK og er einnig innifalinn í uppgefnu verði.
 
Vinsamlegast athugaðu að verðið í vefversluninni getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.
 
Við leggjum okkur fram um að sýna allar vörurnar okkar í réttum litum. Það er hins vegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar tæknilegar takmarkanir. 
 
Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000, laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um rafræn viðskipti & aðra rafræna þjónustu nr.30/2002.

 
Trúnaður og persónuupplýsingar 
Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. Við leggjum áherslu á að varðveita upplýsingar þínar á öruggan hátt.

 
Varnarþing 
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.
 
 
Veiðiland.is

Veiðiland.is er rekið af:
 
I & Ó sf
Box 4208
124 Reykjavík
Ísland
Póstfang: veidiland@veidiland.is
Sími. 775 4696
Kennitala: 630310 1050
Vsk númer: 106534
 
Vefverslunin Veiðiland.is er opin allan sólarhringinn en hægt er að ná í þjónustuver fyrirtækisins alla daga á milli 10:00 til 18:00.

Láttu heyra í þér

Felulitir

Realtree AP HD Blaze

Realtree AP HD Snow

Realtree APG HD

Realtree AP HD

Realtree AP HD Hi Viz

Realtree Hardwoods Blaze

Realtree Hardwoods Snow

Realtree Hardwoods Green HD

Advantage Max-1 HD

Advantage Max-4 HD

Optifade

Eurocamo

Wood I

Wood II

Powered by Smartmedia